Hnit hf hefur unnið að allmörgum verkefnum á sviði umhverfismála, einkum að mati á umhverfisáhrifum. Mat á umhverfisáhrifum er í flestum tilfellum nauðsynlegur undanfari stærri framkvæmda og sjónir almennings hafa beinst æ meir að þessum undanfara, þar sem leitast er við að skilgreina eðli framkvæmdanna og áhrif þeirra á umhverfi sitt. Hnit hf hefur til þessa einkum unnið að mati á umhverfisáhrifum vegaframkvæmda en hefur einnig unnið að umhverfismati vegna virkjunar Urriðafoss í Þjórsá. Það er jafnframt viðamesta verkefni Hnits til þessa á þessu sviði.
Þá hefur Hnit yfir að ráða öflugum hugbúnaði til útreikninga á umferðarhávaða. Hugbúnaðurinn heitir SoundPlan og er einn sá öflugasti sem völ er á til hljóðútreikninga. Hnit hefur unnið fjölmörg verkefni á því sviði fyrir bæjar- og sveitarfélög.
Hnit hf býr yfir reynslumiklum starfsmönnum á þessu sviði og hefur verið ötult í að stuðla að aukinni þekkingu þeirra með því að hvetja þá til þáttöku í námskeiðum og ráðstefnum.
Sæbraut í Reykjavík: Fyrirspurn um matsskyldu
Hnit hf vann fyrirspurn um matsskyldu vegna fyrirhugaðrar færslu Sæbrautar í Reykjavík... [Lesa meira]
Urriðafossvirkjun í Þjórsá: Mat á umhverfisáhrifum
Hnit annaðist matsvinnuna samhliða forhönnun virkjunarinnar. Verkið er hið viðamesta sem Hnit hefur unnið á sviði mats á umhverfisáhrifum... [Lesa meira]
Nýskipulag við Seylubraut í Reykjanesbæ: Útreikningar á hljóðstigi
Reiknaður var út umferðarhávaði frá Reykjanesbraut, Seylubraut og Njarðarbraut í nýskipulögðu hverfi í Reykjanesbæ... [Lesa meira]
Tvöföldun Reykjanesbrautar frá Fífuhvammsvegi að Álftanesvegi: Mat á umhverfisáhrifum
Hnit sá um mat á umhverfisáhrifum vegna tvöföldunar Reykjanesbrautar... [Lesa meira]
Ártúnsholt í Reykjavík: Hljóðútreikningar og tillögur um úrbætur
Reykjanesbraut milli Breiðholtsbrautar og Fífuhvammsvegar: Mat á umhverfisáhrifum
Hringvegur um Hörgsá á Síðu: Mat á umhverfisáhrifum
Hafravatnsvegur: Mat á umhverfisáhrifum
|