Heim Leita Senda póst
Um Hnit
Starfsfólk
English
 

 

Framkvæmdaráðgjöf


Starfsmenn fyrirtækisins hafa víðtæka reynslu í verkefnastjórnun og verkeftirliti ásamt gerð verkáætlana, sem þeir hafa öðlast í verkum á vegum Hnits. Þannig hafa þeir haft með höndum byggingarstjórn og verkeftirlit með fjölmörgum mannvirkjum, sem reist hafa verið í landinu á umliðnum árum.

Þá hafa verkfræðingar og tæknifræðingar Hnits haft með höndum verkefnisstjórn og eftirlit með verklegum framkvæmdum fyrir hönd Kamhnits ehf á Kamchatka í Austur-Síberíu.

Hnit hf hefur lagt á það mikla áherslu að starfmenn vinni skipulega og í góðri samvinnu við verkkaupa. Unnið hefur verið eftir innri gæðareglum sem starfsmenn hafa jafnan tileinkað sér í sínum störfum. Þannig hefur verið unnt að tryggja hagmuni verkkaupa sem best, samhliða því sem Hnit hefur byggt upp góðan orðstí á verkum sínum.

Helstu verkefni


Kárahnjúkavirkjun 690 MW: Eftirlit með stíflum og göngum

Verkefnið felst í byggingu stífla við Hálslón og gerð aðrennslisganga að stöðvarhúsi við Teigsbjarg.  Aðalstíflan er við Hálslón... [Lesa meira]


Þórisvatnsmiðlun: Verkeftirlit

Hnit hf hefur annast eftirlit með vinnu við endurbætur á Sauðafellsmiðlun, hækkun á Þórisósstíflu, Köldukvíslarstíflu... [Lesa meira]


Þjónustuskáli Alþingis: Verkeftirlit

Hnit hf hafði með höndum verkeftirlit og umsjón með byggingu þjónustuskála Alþingis. Verkið hófst árið 2001 og byggingin var tekin í notkun árið 2002... [Lesa meira]


Smáralind: Verkeftirlit og umsjón

Hnit til að sinnti ýmsum lykilþáttum við byggingarframkvæmdina. Þar má nefna verkefnisstjórn við samræmingu hönnunar hússins... [Lesa meira]


Yfirumsjónframkvæmda fyrir Gatnamálastjórann í Reykjavík 1997-2003


Grafarholt, gatnagerð fyrir Gatnamálastjórann í Reykjavík frá 1999


Flutningur Sjónvarpsins frá Laugavegi að Efstaleiti 1999-2000


Gullinbrú, tvöföldun vegar og brúar 1998-1999 fyrir Gatnamálastjórann í Reykjavík


Álverksmiðja Ísals, stækkun ásamt uppsetningu alls búnaðar 1996-1999


Hvalfjarðargöng, 5,8 km löng neðansjávargöng fyrir Spöl hf. 1993-1998


Ráðhús Reykjavíkur við Tjörnina fyrir Reykjavíkurborg 1987-1992


Hreinsistöðvar og útrásir fyrir sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu 1986-1999


Malbiksyfirlagnir og viðgerðir fyrir Reykjavíkurborg 1974-2002


Malbiksframkvæmdir fyrir Vegagerðina og ýmis sveitarfélög 1974-2002


Gatnaframkvæmdir í Reykjavík fyrir Gatnamálastjórann í Reykjavík 1974-2002


Þjóðvegaframkvæmdir fyrir Vegagerðina 1973-1988


Seðlabanki Íslands, nýbygging Seðlabankans 1982-1987


Járnblendiverksmiðjan á Grundartanga fyrir Íslenska járnblendifélagið 1975-1982


Suður- og vesturlandsvegir, 50 km út frá Reykjavík fyrir Vegagerðina 1970-1974


Viðhald og viðgerðir ýmissa húsbygginga

 | Um Hnit |  | Starfsfólk |  | English | 
Hnit hf – Háaleitisbraut 58-60 – 108 Reykjavík – Sími 570 0500 – Fax 570 0503