Grunnur fyrirtækisins var lagður með sérstöðu á sviði mælinga og hefur fyrirtækið frá byrjun lagt töluverða áherslu á landmælingar þ.e. þríhyrninga- og hæðarnetsmælingar, landamerkjamælingar, sigmælingar, netútjafnanir og skyld verkefni.
Allur búnaður til mælinga er af nýjustu gerð svo sem alstöðvar og einmenningsstöðvar, fullkomnar GPS - mælistöðvar, stafrænn fínhallamálsbúnaður, hallamálstæki og annar mælingabúnaður.
Hnit hefur jafnframt yfir miklum mannauði að ráða á þessu sviði og einnig hér hefur fyrirtækið kappkostað að starfsmenn fylgi þeim tækninýjungum sem greinin býður upp á.
Mælingasvið heldur utan um Hnitabankann, en þar er um að ræða einfalt og handhægt kerfi þróað af Hnit til að auðvelda mælingamönnum að finna og vinna með fastmerki.
Landsvirkjun: Framkvæmda- og eftirlitsmælingar við Kvíslaveitur, Þórisvatn og Blönduvirkjun
Landsvirkjun: Þríhyrninganets og sigmælingar í Sigöldu, Hrauneyjarfossi og Sultartanga
Landsvirkjun: GPS netmælingar á virkjanasvæðum Sultartanga, Vatnsfells og Kárahnjúka
Landmælingar Íslands: Mælingar og úrvinnsla landsþríhyrninganets á Reykjanesi og höfuðborgarsvæði
Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli: Mælingar og úrvinnsla landsþríhyrninganets á Reykjanesi og Höfuðborgarsvæði
Spölur ehf: Eftirlits- og þríhyrninganetsmælingar vegna framkvæmda við Hvalfjarðargöng
Reykjavíkurborg: GPS-netmælingar Reykjavík, Álfsnesi, Kjalarnesi og Hvalfirði. Eftirlitsmælingar vegna gatnaframkvæmda
Reykjavíkurhöfn: Netmælingar, sigmælingar og framkvæmdamælin vegna hafnaframkvæmda.
Hafnarfjörður: GPS-netmælingar á suðvestursvæði Hafnarfjarðar.
Ísal: Netmælingar, framkvæmda- og eftirlitsmælingar
Kamhnit International: Ýmsar rannsóknar- og framkvæmdamælingar á Chukotka í Rússlandi
|