Hnit hefur frá upphafi starfað við hefðbundna mannvirkjahönnun, það er við burðarþolshönnun, hönnun lagna- og veitukerfa. Meðal verkefna má nefna hönnun verksmiðju- og skrifstofuhúsa, hjúkrunarheimila, umferðarbrúa, sundlauga, lagna- og veitukerfa í Reykjavík og nágrannabæjum Reykjavíkur og á Reykjanesi, auk fjölmargra annarra mannvirkja. Þá hafa tæknimenn fyrirtækisins hannað sundlaug, hitaveitur, laxeldisstöðvar, baðhús, hótel og 3ja MW raforkuver í austanverðri Síberíu í Rússlandi, auk þess sem hverir hafa verið virkjaðir og hitaveitur hannaðar. Jafnframt hefur Hnit unnið við gerð verkhönnunarskýrslu fyrir Urriðafossvirkjun í Neðri Þjórsá (150 MW og 900 GWt/ári) og við gerð forathugunarskýrslu fyrir virkjanakosti í Neðri Þjórsá.
Starfsmenn Hnits hafa einnig mikla reynslu í allri almennri áætlanagerð í tengslum við mannvirkjagerð og viðhald mannvirkja. Má þar nefna kostnaðaráætlanir, verk- og tímaáætlanir og áætlanir um mannafla og aðföng.
Brýr á Nesbraut við Hringveg: Burðarþolshönnun, kostnaðaráætlun o.fl.
Verkfræðistofan Hnit hf. alla burðarþolshönnun, ásamt kostnaðaráætlun, verklýsingu og gerð útboðsgagna vegna brúar á mótum Nesbrautar og Hringvegar... [Lesa meira]
Vogaskóli - Viðbygging: Hönnun burðarþols, lagna og loftræstingar
Hnit hf annaðist alla hönnun burðarþols, lagna og loftræstingar í viðbyggingu við Vogaskóla í Reykjavík. Viðbyggingin er 3.700 m2 að stærð... [Lesa meira]
|
Hampiðjan, Skarfagörðum - Skrifstofubygging og netaverkstæði
Burðarþolshönnun á um 3.400 m2 stálgrindarbyggingu, ásamt tilheyrandi steyptum undirstöðum, og samtengdri um 2.300 m2 steyptri skrifstofubyggingu.
|
|
Urðarhvarf - 9 hæða skrifstofubygging
Hnit hf. annaðist burðarþolshönnun 9 hæða skrifstofubyggingu ásamt kjallara við Urðarhvarf í Kópavogi... [Lesa meira]
|
|
R. Sigmundsson, Klettagörðum - Skrifstofu- og verslunarhúsnæði, ásamt verkstæði
Burðarþolshönnun á um 3.500 m2 stálgrindarbyggingu, ásamt steyptum undirstöðum.
|
|
Klukknaport við Langholtskirkju
Burðarþolshönnun klukknaports Langholtskirkju í Reykjavík. Klukknaportið samanstendur af fjórum 16 metra háum veggjum sem bera 4 klukkur og vegur sú þyngsta hálft tonn.
|
|
Brýr á Reykjanesbraut: Burðarþolshönnun o.fl.
Hnit hf annaðist burðarþolshönnun brúa á Reykjanesbraut fyrir Vegagerðina. Brýr verða á vegamótum við Vatnsleysustrandarveg og við Hvassahraun... [Lesa meira]
|
|
Urriðafossvirkjun í Þjórsá: Verkhönnun (Project Planning)
Hnit hf vann að Verkhönnun Urriðafossvirkjunar í Þjórsá í samvinnu við Sweco International AB (Svíþjóð) og Rafhönnun hf... [Lesa meira]
|
|
Stálbrýr í Chukotka í Austur Síberíu
Hnit hf. annaðist burðarþolshönnun þriggja stálbrúa með 15, 20 og 60 metra haflengdir, sem allar voru grundaðar á sífrera... [Lesa meira]
|
|
Leikskólar á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri
Hnit hf hefur annast burðarþolshönnun fyrir fjölmarga leikskóla, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri... [Lesa meira]
|
|