Heim Leita Senda póst
Um Hnit
Starfsfólk
English
 

 


Ráðgjafarstarfsemi Hnits hf er gæðavottuð skv. ÍST EN ISO 9001:2000 gæðastjórnunarstaðli. Hnit heldur þannig stöðu sinni í hópi fremstu verkfræðistofa landsins og mun þannig leitast við að uppfylla væntingar og kröfur viðskiptavina sinna um faglega lausn verkefna, tímasetningar og kostnað. Það var hin virta stofnun British Standards Institution sem vottaði fyrirtækið.

ISO 9001:2000 staðallinn gerir ákveðnar kröfur til gæðastjórnunarkerfis fyrirtækja. Þar er m.a. gerð krafa um að unnið sé eftir fyrirfram ákveðnu verklagi með hagsmuni viðskiptavinarins að leiðarljósi, að stýring skjala sé í skilgreindum farvegi sem og stjórnun verkefna. Gæðastjórnunarkerfi sem vottað er samkvæmt staðlinum er því mikilvægt stjórnunartæki við skipulagningu og framkvæmd verkefna.

Með innleiðingu og vottun gæðastjórnunarkerfis hjá Hnit og framkvæmd þeirrar gæðastefnu sem fyrirtækið hefur sett sér, er tryggt að Hnit mun vinna stöðugt að því að uppfylla kröfur viðskiptavinarins um gæði á sem hagkvæmastan hátt. Gæðakerfi Hnits endurspeglar þá þekkingu og reynslu fyrirtækisins sem hafa skapast á yfir 30 ára starfsemi þess.

Sjá vottunarskírteini á pdf formi.

 | Um Hnit |  | Starfsfólk |  | English | 
Hnit hf – Háaleitisbraut 58-60 – 108 Reykjavík – Sími 570 0500 – Fax 570 0503