Verkfræðistofan Hnit hefur frá upphafi veitt alla almenna verkfræðiráðgjöf. Fyrirtækið starfar nú á fjölmörgum ólíkum sviðum og leitast við að veita vandaða þjónustu á sem breiðustum grundvelli, allt frá verkfræðiráðgjöf til hugbúnaðargerðar. Þar má nefna m.a. landmælingar, veg- og gatnahönnun, áætlanagerð, burðarþolshönnun, véla- og lagnahönnun, hönnunarstjórn, framkvæmdaráðgjöf og verkeftirlit.
Hnit hf er til húsa í Miðbæ að Háaleitisbraut 58 - 60, 108 Reykjavík, þar sem fyrirtækið hefur yfir að ráða rúmgóðu húsnæði á 2. og 3. hæð.
Starfsemi fyrirtækisins er skipt upp í eftirfarandi svið. Nánari upplýsingar um starfsemi fyrirtækisins má fá með því að smella á viðeigandi hnapp hér til hliðar.
- Byggingar - Sviðsstjóri: Haukur J. Eiríksson
- Samgöngur og umhverfi - Sviðsstjóri: Guðmundur G. Hallgrímsson
- Framkvæmdir - Sviðsstjóri: Þór Gunnarsson
- Mælingar - Sviðsstjóri: Jón Þór Björnsson
Hjá verkfræðistofunni eru nú um 60 starfsmenn, verkfræðingar, tæknifræðingar, mælingaverkfræðingar, tækniteiknarar, skrifstofumenn og aðrir starfsmenn. Stjórnarformaður er Bjarni Gunnarsson. Framkvæmdastjóri er Harald B. Alfreðsson og aðstoðarframkvæmdastjóri er Kristinn Guðjónsson.
Verkfræðistofan Hnit hf var stofnuð árið 1966. Hnit annaðist þá mælingar og almenna verkfræðiráðgjöf. Fyrirtækið hóf fulla starfsemi árið 1970 og veitti þá bæjar- og sveitarfélögum almenna verkfræðiþjónustu, auk þess að annast mælingar og eftirlit. Stofnendur Hnits í núverandi mynd voru verkfræðingarnir Guðmundur Björnsson og Baldur Jóhannesson.
Starfsemin vatt smám saman upp á sig og árið 1982 keypti Hnit kortagerðardeild Forverks. Í kringum 1988 fór Hnit að tileinka sér landupplýsingatækni sem þá var að ryðja sér til rúms og brátt var komin öflug deild innan fyrirtækisins á því sviði. Hugbúnaðargerð tók einnig að þróast innan fyrirtækisins á þessum tíma og var sjónum einkum beint að því að þróa hugbúnað á sviði kortagerðar og upplýsingatækni. Þessi þrjú svið urðu stór þáttur í starfsemi Hnits, en voru síðar færð undir sérstakt fyrirtæki Hnits, Samsýn ehf.
Árið 1993 stofnaði Hnit dótturfyrirtækið Hnit Baltic Geoinfoservisas í Litháen. Jafnframt hóf verkfræðistofan starfsemi í Rússlandi á vegum annars dótturfyrirtækis, KamHnit. Sú starfsemi er enn í gangi, en undir öðrum formerkjum. Árið 1998 var stofnað fyrirtækið Envirotech í Lettlandi og gengur sú starfsemi vel, líkt og segja má um starfsemi Hnits í Litháen.
Hnit hf hefur verið í vexti allt frá stofnun, enda haft að leiðarljósi að víkka sjóndeildarhringinn og nýta sér þau sóknarfæri sem gefast, en umfram allt að skila góðum verkum. Starfsmannafjöldi hefur aukist um nærri 60% á síðustu 5 árum og það hefur jafnframt skilað sér í aukinni veltu.
Hnit hf vill tryggja gæði vinnu sinnar og tryggja þannig jafnframt að viðskiptavinurinn sé ánægður. Þess vegna hefur Hnit hf fengið gæðavottun samkvæmt ÍST EN ISO 9001:2008 staðli um gæðastjórnun.
Árið 2008 urðu breytingar á eignarhaldi Hnits og var fyrirtækinu jafnframt skipt upp í aðskildar einingar. Í dag heitir fyririrtækið Hnit verkfræðistofa hf og sinnir eingöngu verkfræðiráðgjöf. Dótturfélög voru aðskilin frá rekstri verkfræðistofunnar. Eigendur Hnits verkfræðistofu hf eru allir í starfsliði fyrirtækisins.
|