Hnit hefur frá upphafi starfað við hefðbundna mannvirkjahönnun, það er við burðarþolshönnun, hönnun lagna- og veitukerfa. Meðal verkefna má nefna hönnun verksmiðju- og skrifstofuhúsa, hjúkrunarheimila, umferðarbrúa, sundlauga, lagna- og veitukerfa í Reykjavík og nágrannabæjum Reykjavíkur og á Reykjanesi, auk fjölmargra annarra mannvirkja. Þá hafa tæknimenn fyrirtækisins hannað sundlaug, hitaveitur, laxeldisstöðvar, baðhús, hótel og 3ja MW raforkuver í austanverðri Síberíu í Rússlandi, auk þess sem hverir hafa verið virkjaðir og hitaveitur hannaðar. Jafnframt hefur Hnit unnið við gerð verkhönnunarskýrslu fyrir Urriðafossvirkjun í Neðri Þjórsá (150 MW og 900 GWt/ári) og við gerð forathugunarskýrslu fyrir virkjanakosti í Neðri Þjórsá.
Starfsmenn Hnits hafa einnig mikla reynslu í allri almennri áætlanagerð í tengslum við mannvirkjagerð og viðhald mannvirkja. Má þar nefna kostnaðaráætlanir, verk- og tímaáætlanir og áætlanir um mannafla og aðföng.
Fráveitukerfi
Hnit hf hefur allt frá stofnun tekið þátt í byggingu fráveitukerfa með hönnun, undirbúningsrannsóknum, útboðsgögnum og eftirliti með framkvæmdum... [Lesa meira]
Vatnsveitukerfi
Hnit hf hefur allt frá stofnun tekið þátt í byggingu fráveitukerfa með hönnun, undirbúningsrannsóknum, útboðsgögnum og eftirliti með framkvæmdum... [Lesa meira]
Sundlaugar, baðhús og vatnsrennibrautir
Verkfræðistofan Hnit annaðist verkhönnun, efnisútvegun, flutningsumönnun ásamt allri verkefnisstjórnun og verkeftirliti vegna sundlauga á Kamchatka... [Lesa meira]
Seiðaeldisstöðvar
Verkfræðistofan Hnit annaðist verkhönnun, efnisútvegun, flutningsumönnun ásamt allri verkefnisstjórnun og verkeftirliti vegna sundlauga á Kamchatka... [Lesa meira]
Foldaskóli - Lagnir og loftræstikerfi: Hnit sá um hönnun lagna og loftræsikerfis vegna stækkunar skólans.
Birgðastöð Baugs hf, Skútuvogi 7: Hönnun lagna og loftræstikerfa, burðarþolshönnun steinsteyptra byggingarhluta
Hjúkrunarheimilið Ás, Hveragerði: Hönnun lagna og loftræstingar, burðarþolshönnun, gerð útboðsgagna
Birgðastöð Reykjavíkurhafnar, Fiskislóð 12: Hönnun lagna, burðarþol sökkla og undirstaða fyrir stálgrindarbyggingu
|