Veg- og gatnahönnun er þýðingarmikið svið í starfsemi fyrirtækisins. Auk þess að vinna að veg- og gatnahönnun, þá vinna starfsmenn sviðsins að ýmsum tengdum verkefnum, s.s. rannsóknum, mælingum, skýrslugerð og gerð áætlana og útboðsgagna.
Við veghönnun er notaður hugbúnaður frá Vianova AS í Noregi. Hugbúnaðurinn heitir NovaPoint og liggur ofan á AutoCad teiknikerfi. Hann styðst m.a. við norræna staðla í veg- og gatnahönnun og mögulegt er að teikna gatnamót, hringtorg, skilti og merkingar ásamt hefðbundinni veghönnun.
Í tengslum við veg- og gatnahönnun hefur Hnit yfir að ráða öflugum hugbúnaði til útreikninga á umferðarhávaða. Sá hugbúnaður hefur m.a. verið notaður til að reikna út umferðarhávaða við mismunandi hönnunarútfærslur. Hugbúnaðurinn heitir SoundPlan og er einhver sá öflugasti sem völ er á á þessu sviði.
Breikkun Reykjanesbrautar frá Hafnarfirði til Njarðvíkur: Hönnun og útboðsgögn
Vegagerðin bauð út forhönnun og verkhönnun Reykjanesbrautar - Breikkun á milli Hafnarfjarðar og Njarðvíkur í ágúst 2001 og samdi við verkfræðistofuna Hnit... [Lesa meira]
Breikkun Reykjanesbrautar um Kópavog: Mat á umhverfisáhrifum, hönnun og útboðsgögn
Verkefnið var unnið af Hnit á árunum 1995 – 1999 og var mjög viðamikið... [Lesa meira]
Snjóflóðavarnargarðar Siglufirði: Verkhönnun og útboðsgögn
Hnit hf annaðist verkhönnun og útboðsgerð tveggja leiðigarða við Siglufjörð, annars vegar við Ytra Strengsgil og hins vegar við Jörundarskál... [Lesa meira]
Endurnýjun gatna í Kvos fyrir Reykjavíkurborg: Gatnahönnun og útboðsgögn
Frá árinu 1989 hefur verkfræðistofan Hnit annast gatnahönnun og útboðsgerð við endurnýjun miðbæjar Reykjavíkur... [Lesa meira]
30 km hverfi í Reykjavík: Hönnun og útboðsgögn
Frá árinu 1996 hefur Hnit h.f. unnið að hönnun og gerð útboðsgagna fyrir ný 30 km hverfi í Reykjavík... [Lesa meira]
Hvalfjarðargöng: Útboðsgögn, úttekt hönnunar o.fl. fyrir Spöl ehf
Undirbúningur að gerð 5,8 km ganga, þar af 3,1 km undir sjó, í 3 milljón ára gömlu basaltlagi hófst árið 1991... [Lesa meira]
Hafravatnsvegur: Suðurlandsvegur - Úlfarsfellsvegur: Mat á umhverfisáhrifum, hönnun og útboðsgögn
Skeiða- og Hrunamannavegur: Flúðir - Skipholt: Hönnun og útboðsgögn
Hringtorg í Grindavík: Forhönnun, athugun og tillögur um úrbætur á nokkrum gatnamótum
Hringvegur um Hörgsá á Síðu í Vestur-Skaftafellssýslu: Hönnun og útboðsgögn
Vallarhverfi í Grindavík: Gatnahönnun og útboðsgögn
Tvöföldun Reykjanesbrautar frá Fífuhvammsvegi að Kaplakrika: Frumdrög og mat á umhverfisáhrifum
|