Heim Leita Senda póst
Um Hnit
Starfsfólk
English
 

 

Vinnuvernd


Verkfræðistofan Hnit hf býður nýja þjónustu á sviði vinnuverndar. Í boði er öryggis- og heilbrigðisþjónusta fyrir byggingarvinnustaði og við aðra tímabundna mannvirkjagerð.

Helstu þjónustuþættir eru:

  • Gerð öryggis– og heilbrigðisáætlunar á hönnunarstigi
  • Gerð öryggis– og heilbrigðisáætlunar á framkvæmdastigi
  • Gerð öryggishandbókar fyrir verklega framkvæmd
  • Hlutverk samræmingaraðila öryggis– og heilbrigðismála
  • Aðstoð við áhættumat verkþátta
  • Eftirlit með framkvæmd öryggis– og heilbrigðisáætlunar
  • Gerð verklagsreglna
  • Námskeið og starfsmannafræðsla
  • Fræðsla nýliða
  • Rannsóknir og greining vinnuslysa og hættutilvika

Ávinningur af öflugu öryggis- og heilbrigðisstarfi er m.a. minni kostnaður vegna slysa og veikinda, minni tafir við framkvæmd verks, betri ímynd fyrirtækis, betri vinnubragur, betri starfsandi og minni starfsmannavelta. 

Mörg fyrirtæki hafa reynslu af því að utanaðkomandi aðstoð kemur reglu á öryggis- og heilbrigðisstarf, skilar góðum árangri, léttir störf stjórnenda og losar verkstjóra við hagsmunaárekstra vegna afkasta/öryggis.

Hnit leggur áherslu á vandaða þjónustu byggða á nýjustu þekkingu og reynslu á sviði vinnuverndar. Þjónustan miðast við þarfir og óskir, umfang verkefna og stærð vinnustaða.

Hnit hf hefur fengið viðurkenningu Vinnueftirlitsins sem þjónustuaðili á vinnuverndarsviði.

Hnit hefur mikla reynslu af framkvæmda- og öryggiseftirliti m.a. við byggingu Smáralindar og við gerð Kárahnjúkavirkjunar.

 | Um Hnit |  | Starfsfólk |  | English | 
Hnit hf – Háaleitisbraut 58-60 – 108 Reykjavík – Sími 570 0500 – Fax 570 0503