BURÐARÞOL - ELDRI VERKEFNI
Hér að neðan eru nokkur eldri burðarþolsverkefni Hnits. Ekki er hægt að smella á öll verkefnin til að fá frekari umfjöllun um þau.

HÓPSKÓLI Í GRINDAVÍK
Hönnun burðarþols, lagna, loftræsingar, sprinkler-kerfis og rafmagns.
Stærð: 1.825 fm (fyrsti áfangi).

R. SIGMUNDSSON VIÐ KLETTAGARÐA
Hönnun burðarþols stálgrindarbyggingar, lagna og loftræsingar.
Stærð: 3.500 fm.

HAMPIÐJAN VIÐ SKARFABAKKA
Stálgrindarbygging og sambyggð steypt bygging Hampiðjunnar við Skarfagarða. Hönnun burðarþols, lagna, loftræsingar og rafmagns.
Stærð: 3.400 fm + 2.300 fm (netaverkstæði og skrifstofubygging).

UMFERÐARBRÚ Á GATNAMÓTUM HRINGVEGAR VIÐ NESBRAUT
Stærð: 2x30 m haflengdir. Hönnun burðarþols.

UMFERÐARBRÝR Á TVÖFALDRI REYKJANESBRAUT
Haflengdir 16-18 m. Hönnun burðarþols.
Samtals 14 brýra á 23 km kafla.

SUNDLAUG ÓLAFSFJARÐAR, ENDURBÆTUR
Hönnun burðarþols, lagna og lýsingar.
LEIKSKÓLAR
Leikskólar í Reykjavík, Hafnarfirði, Mosfellsbæ og Akureyri. Alls átta 2-4 deilda leikskólar. Hönnun burðarþols, lagna og loftræsingar.


GRUND - MÖRKIN - TENGIBYGGING
Verkið fólst í hönnun á burðarþoli og lögnum í tengibyggingu milli íbúðabygginga Suðurlandsbraut 58-62 og hjúkrunarheimilis Suðurlandsbraut 66.
Stærð 1.260 m2.

HOLTSVEGUR 23-25 - GARÐABÆ
Verkið fólst í hönnun á burðarþoli, lögnum og loftræsingu í fjölbýlishúsi við Holtsveg 23-25 í Garðabæ. Allar lagnir hússins voru hannaðar í Revit. Burðarkerfi hússins var teiknað í Revit.
Stærð 2.700 m2.