top of page

Lauflétt getraun 

Vegleg verðlaun fyrir réttu svörin!

Í textanum hér fyrir neðan er stiklað á stóru í rúmlega 55 ára sögu Hnits verkfræðistofu frá stofnun til dagsins í dag. Til að komast í pottinn þarf að svara þremur laufléttum spurningum neðst á síðunni, gefa upp nafn, netfang og símanúmer og senda svörin inn. Við drögum úr réttum svörum þann 31. mars.

Saga Hnit Artelia

Hnit verkfræðistofa hf. var stofnuð árið 1970 og veitti þá fyrst og fremst bæjar- og sveitarfélögum almenna verkfræðiþjónustu, auk þess að annast mælingar og eftirlit. Hnit hafði mikla sérstöðu á sviði mælinga og á árunum upp úr 1975 var Hnit orðið leiðandi fyrirtæki í landmælingum.

Metnaður fyrirtækisins fyrir nýjungum leiddi af sér fyrstu tölvukaup fyrirtækisins. Fyrir valinu varð NOVA 3D tölva frá Data General. Tölvan var keypt frá Bandaríkjunum og kostaði 19.460 dali á þeim tíma. Það jafngildir um 111.000 dölum uppreiknað til núvirðis, eða um 13,6 milljónum króna. Tölvan var 128 Kb.

 

Á myndinni til hliðar má sjá tölvubúnað Hnits um 1980. Skápurinn lengst til hægri er önnur tölva Hnits, af gerðinni Data General MV-4000 Eclipse, 4 Mb. Við hlið hennar er DEC Micro WAX, 5 Mb

Starfsemin vatt smám saman upp á sig og árið 1982 bættist kortagerð við þjónustuna. Í kringum 1988 fór Hnit að tileinka sér landupplýsingatækni sem þá var að ryðja sér til rúms og brátt var komin öflug deild innan fyrirtækisins á því sviði. Hugbúnaðargerð tók einnig að þróast innan fyrirtækisins á þeim tíma og var sjónum einkum beint að þróun hugbúnaðar á sviði kortagerðar og upplýsingatækni. Þessi þrjú svið urðu stór þáttur í starfsemi Hnits, en árið 2006 voru þau flutt í sérstakt fyrirtæki, aðskilið frá verkfræðistofunni.​

Hnit hefur haft að leiðarljósi að víkka sjóndeildarhringinn og nýta þau sóknarfæri sem gefast á hverjum tíma. Megináherslan hefur þó ávallt verið að skila góðum verkum.   Verkefnin hafa verið fjölmörg, stór og smá, bæði á sviði hönnunar og framkvæmdaeftirlits. Má þar m.a. nefna virkjanaframkvæmdir, veituframkvæmdir, veggöng og ýmis önnur stór samgöngumannvirki. Opinberir verkkaupar hafa alltaf verið mikilvægir og milli 70-80% af veltu fyrirtækisins er tengd opinberum verkefnum.

Í upphafi árs 2020 hóf Hnit samstarf við Artelia Group, í gegnum dönsku verkfræðistofuna MOE, við að skoða tækifæri á sviði samgönguverkefna. MOE var þá orðið hluti af Artelia Group. Árið 2021 urðu Hnit, MOE og Artelia í Frakklandi ásamt arkitektafyrirtækjunum Yrki arkitektar og GPA í Danmörku hlutskörpust í ströngu útboðsferli um hönnun á fyrstu lotu Borgarlínu og var samstarfið við Artelia Group því formlega komið á. Árið 2021 og á árunum þar á eftir voru starfsmenn MOE tíðir gestir hjá Hnit og tveir starfsmenn Artelia France höfðu fasta viðveru hjá verkfræðistofunni.

En hvað er Artelia eiginlega?​

Artelia Group er alþjóðlegt verkfræði- og ráðgjafarfyrirtæki sem þjónustar viðskiptavini með hönnun, þróun og stjórnun flókinna verkefna á sviði innviða, mannvirkja, iðnaðar og vatnslausna, auk fjölda annarra sviða tengt verkfræði. Með sterka áherslu á nýsköpun, sjálfbærni og framúrskarandi þjónustu, veitir Artelia fjölbreytta sérfræðiráðgjöf allt frá fyrstu áætlanagerð og hönnun, í framkvæmd og byggingu og áfram í rekstur og langtíma eignastýringu.

Samstæðan er með skrifstofur í meira en 40 löndum í Evrópu, Afríku, Miðausturlöndum, Asíu og Ameríku og er í 100% eigu  starfsmanna. Af um 11.000 starfsmönnum Artelia Group eru um 8.000 í Evrópu.

​Árið 2019 varð samruni MOE og Artelia. MOE tók upp nafnið MOE Artelia Group við samrunann og árið 2023 varð MOE að Artelia Danmark.​

Árið 2020 keypti Artelia Group norsku verkfræðistofuna Dr. Techn. Olav Olsen, rótgróna stofu á norskum

verkfræðimarkaði. Hún varð sömuleiðis Olav Olsen Artelia Group, en ráðgert er að stofan taki upp Artelia nafnið síðar á þessu ári.

Hnit varð formlega hluti af Artelia í mars 2025. Hnit Artelia er nú hluti af þessu 11.000 manna samfélagi verkfræði-, tækni og vísindafólks sem Artelia Group er. Norrænu félögin heyra undir einingu sem nefnist Business Unit Nordics. Þar nýtur Hnit góðs af öflugu baklandi með alls 1.750 starfsmanna í fremstu röð.

Hnit bætist nú í hóp með MOE og Dr. Techn. Olav Olsen, og tekur upp Artelia Group nafnið. Vörumerkið Hnit er vel þekkt á íslenskum verkfræðimarkaði og munu viðskiptavinir okkar því áfram tengja nýja heitið við þá góðu þjónustu sem við höfum veitt í áraraðir undir nafni Hnits.

Við erum nú hluti af Artelia Group

Hnit verkfræðistofa hf.,- Háaleitisbraut 58-60 - 108 Reykjavík -  kt. 510573-0729   - sími 5 700 500 - Hafa samband / Contact

BSI 2022.png

Hnit verkfræðistofa hefur verið starfandi frá árinu 1970 og sérhæfir sig í alhliða verkfræðiráðgjöf á sviði mannvirkjagerðar.

Hnit verkfræðistofa er hluti af Artelia Group.

Jafnlaunavottun_2020_2023_f_dokkan_grunn
bottom of page