top of page

Hnit verkfræðistofa hf. hefur frá upphafi veitt alla almenna verkfræðiráðgjöf á sviði mannvirkjagerðar. Fyrirtækið starfar nú á fjölmörgum ólíkum sviðum og leitast við að veita vandaða þjónustu á sem breiðustum grundvelli. Má þar nefna m.a. landmælingar, veg- og gatnahönnun, áætlanagerð, burðarþolshönnun, lagnahönnun, hönnunarstjórn, framkvæmdaráðgjöf og verkeftirlit.

 

 

 

Hnit hefur verið til húsa í Miðbæ að Háaleitisbraut 58 - 60, 108 Reykjavík síðan 1988. Þar áður í Síðumúla 31.

 

Kennitala Hnits verkfræðistofu hf. er 510573-0729

 

Hjá verkfræðistofunni starfa nú um 36 manns, verkfræðingar, tæknifræðingar, tækniteiknarar, skrifstofumenn og aðrir starfsmenn.

 

Framkvæmdastjóri er Kristinn Guðjónsson.

Stjórn fyrirtækisins skipa Haukur Jörundur Eiríksson (stjórnarformaður), Leifur Skúlason Kaldal, Guðmundur Gunnar Hallgrímsson og Halldór Kristinsson (varamaður).

 

Hnit hefur að leiðarljósi að gæði vinnu sinnar séu tryggð þannig að viðskiptavinurinn megi ávalt vera ánægður með þjónustuna. Í því skyni hefur Hnit haft gæðavottun samkvæmt ÍST EN ISO 9001 staðli um gæðastjórnun síðan 2005.

 

Sjá má hér frekari upplýsingar um sögu Hnits allt frá stofnun 1970.

UPPLÝSINGAR

bottom of page